Batteriid ehf | Trönuhrauni 1 | 220 Hafnarfjörður | Iceland | Tel: +354 54 54 700 |
Batteríið ehf. – arkitektar er skapandi þekkingarfyrirtæki með sérþekkingu og yfir 20 ára reynslu á sviði byggðaskipulags og mannvirkjahönnunar.
Fyrirtækið var stofnað í Reykjavík árið 1988 af arkitektunum Jóni Ólafi Ólafssyni og Sigurði Einarssyni.
Árið 2001 gerðist Sigurður Harðarson hluthafi en samstarf hans og Batterísins hófst 1995.
Verk Batterísins ná yfir allt litróf hönnunar, frá skipulagsgerð til iðnhönnunar. Fyrirtækið hefur annast hönnun almannabygginga, stjórnsýslu-, menningar- og skrifstofumannvirkja, iðnaðar-og íþróttamannvirkja, bygginga fyrir póstþjónustu og bankastarfsemi, skóla og leikskóla, veitna, íbúðarbygginga og endurgerð friðaðra bygginga.
Fyrirtækið býr yfir mikilli hönnunarreynslu og er að langstærstu leyti skipað starfsfólki með góða menntun á háskólastigi, sem leggur áherslu á góðar hugmyndir og úrlausnir.
Fyrirtækið hefur ávallt lagt sig fram við að tileinka sér nýjungar í hönnun og tæknilausnum og hefur ítrekað sýnt í verki að ráðgjöf þess og þjónusta hefur skilað árangri fyrir viðskiptavini þess og fyrirtækinu sjálfu í fremstu röð.
Batteríið hefur vaxið hratt. Fyrirtækið er fjórða stærsta ráðgjafarfyrirtæki arkitekta á Íslandi. Áætluð ársvelta fyrirtækisins nemur um 6% - 7% af heildarveltu atvinnugreinarinnar og fjöldi starfsmanna fyrirtækisins er um 6% af heildarfjölda starfsmanna innan greinarinnar (ca 34 af 550).